2.5.2012 | 19:31
Fyrsti níundardómur
Eftir stóra upphlaup afturhlaup lögbroti á þinginu lögvillu Bergi á Austurvelli
þá gengu þau til dóms lengi í stóra landsdómsmálinu. Er þá nýlund kveðin
fyrst upp níundardómur eitt hringl um alla jörð jarðarkringlu.
Vóru þau þá öll saman Bergþóra og Hallgerður, Valgarður Mörður og Kári,
Gunnar Héðinn og Njáll og margt manna með þeim.
Á sakar bekk sat kunnr Geir aleinn spakr um nasir grön og glotti við tönn;
fjölmiðlungar ringl ráði alt als hringl í kringl.
Eftir dómsorðið kom skjálfti í alla jörð öllu hafi og himnasmiði.
Spyr þá sá sem ekkert veit: - Hverju reiðast goðin?
Þá orti Geir vísu:
Skollvís fellr skeggja
Fitjungr ið sama
Fár við hlær val
Viðris hræ
Sinn
Hló at heimisgarði gó ok gnapti
Geirmímir neppr
Æva glissir
Gjörð at Geiri
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.5.2012 kl. 09:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.