26.5.2012 | 12:44
Tvær sólir
Evróvision í kvöld - úrslitin!
Í gær sagði fréttablaðið af ákvörðun Jonny Depp - hann valdi sér nýja þjóð, gekk til liðs við kómansí indjánana frá nýju mexikó.
Í dag segir morgunblaðið af ákvörðun Jia Chen -- hún valdi sér nýja þjóð, gekk til liðs við okkur hér uppi á skerinu í hafi 16 ára gömul þegar kom hingað alein og leitaði sér hælis; Jia var að útskrifast í gær frá náttúrufræðibraut fjölbrautarskólans í breiðholti með ágætiseinkunn - og hlaut að auki verðlaunin fyrir besta árangur í íslensku sem öðru tungumáli en móðurmáli.
Þjóð með þjóð. Sól með sól. Það er eurovision.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.